Komdu fyrst í forskoðun

Þverfaglegt teymi Sjónlags hefur áralanga reynslu af því að meta sjónlag og veita ráðgjöf um aðgerð í samræmi við ástand augna og aðra þætti í heilsufari fólks. Í Sjónlagsteyminu eru sjóntækjafræðingar og hjúkrunarfræðingar auk augnskurðlæknanna. Forskoðunin er mjög ítarleg en markmið hennar er að leiða í ljós hvort eitthvað standi í vegi fyrir að þú getir farið í sjónlagsaðgerð og ráðleggja þér bestu leiðina. Um 80% þeirra sem fara í skoðun geta farið í aðgerð. Með aðstoð okkar getur þú tekið upplýsta ákvörðun um hvort og hvers konar aðgerð þú vilt fara í. Sjónlagsteymið vinnur náið með augnhjúkrunarfræðingi Táralindar þegar þörf er á að gera tárafilmu og augnhvarma tilbúna fyrir sjónlagsaðgerð. Athugið að það er mikilvægt að vera án snertilinsa í eina viku fyrir forskoðun.

Panta tíma í forskoðun

Það er nauðsynlegt að koma í forskoðun þar sem augnlæknir metur hvort og þá hvaða sjónlagsaðgerð henti þér.

Panta tíma

Yngri en 50 ára* - aðgerðir

Laseraðgerðir

Sjónlag var fyrst til að taka upp Femto LASIK tækni á Íslandi árið 2012 til þess að lagfæra nærsýni, fjarsýni og sjónskekkju. Femto LASIK eða TransPRK SmartPulse eru aðferðirnar sem við notum. Þörfina á lesgleraugum er einnig hægt að minnka með PresbyMAX Femto lasik meðferð. Reynslan síðastliðin þrettán ár hefur verið mjög góð. 

Leiðrétting á aldursbundinni fjarsýni

PresbyMAX nýtir tækni Schwind lasersins til að gera 45-55 ára með aldursbundna fjarsýni, kleift að sjá vel, jafnt nær sem fjær. PresbyMAX er hægt að nýta hvort sem er með FemtoLASIK 6D eða SmartSurface. PresbyMAX hentar einnig þeim sem hafa farið í augasteinsaðgerð með einfókusgerviaugasteinum og vilja losna við lesgleraugun. PresbyMAX býður upp á mismunandi leiðir til góðrar sjónar, allt eftir því hvar þínar áherslur eru með tilliti til sjónar. Við munum ráðleggja þér bestu leiðina að lokinni forskoðun.

Linsuígræðsla (ICL-aðgerð)

Í ICL-aðgerð er mjúk gervilinsa grædd í augað til að leiðrétta sjónlagsgalla, hvort sem er nærsýni, fjarsýni eða sjónskekkja. Linsan er staðsett fyrir framan náttúrulegu linsu augans en á bak við lithimnuna. Linsuígræðsla hentar þeim sem eru bilinu 20–60 ára með nærsýni eða fjarsýni (með eða án sjónskekkju). Linsuígræðsla hentar sérstaklega vel ef laseraðgerð er ekki möguleg vegna hornhimnuþykktar.

Eldri en 50 ára* – aðgerðir

Augasteinaskipti

Augasteinaskipti er algeng aðgerð til að hjálpa fólki að sjá án gleraugna. Hún er góð leið til að leiðrétta nærsýni, fjarsýni, sjónskekkju og aldurstengda fjarsýni, sérstaklega hjá þeim sem þurfa orðið á lesgleraugum að halda. Aðgerðin getur einnig hentað þeim sem yngri eru og passa ekki í LASIK eða ICL aðgerð. Við augasteinaskipti er linsa augans fjarlægð og gerviaugastein komið fyrir í stað hennar.

Fjölfókus augasteinar

Gerviaugasteinar eru með mismunandi eiginleikum. Þeir sem fá hefðbundna, einfókus gerviaugasteina þurfa yfirleitt lesgleraugu eftir aðgerðina og þeir sem eru með sjónskekkju geta reiknað með að þurfa gleraugu við daglegt líf. „Fínni“ tegundir gerviaugasteina leiðrétta sjónskekkju og eru með nærfókus. Þeir gera þannig fólki mögulegt að vera án gleraugna.

Linsuígræðsla (ICL-aðgerð)

Í ICL-aðgerð er mjúk gervilinsa grædd í augað til að leiðrétta sjónlagsgalla, hvort sem er nærsýni, fjarsýni eða sjónskekkja. Linsan er staðsett fyrir framan náttúrulegu linsu augans en á bak við lithimnuna. Linsuígræðsla hentar þeim sem eru bilinu 20–60 ára með nærsýni eða fjarsýni (með eða án sjónskekkju). Linsuígræðsla hentar sérstaklega vel ef laseraðgerð er ekki möguleg vegna hornhimnuþykktar. Lesa nánar hér:

*Aldursskipting er einungis til viðmiðunar. Hvert tilfelli þarf að skoða fyrir sig.

Ský á augasteini

Einkenni

Ský á augasteini kallast það þegar tærleiki augasteinanna hefur minnkað svo mikið að það veldur sjónskerðingu. Algengustu einkennin eru þokusjón, versnun á nætursjón, glýja (t.d. útdregin ljós). Ofantalin einkenni geta einnig verið vegna annarra augnsjúkdóma og því ættu þeir sem hafa þessi einkenni að leita til augnlæknis.

Meðferð

Meðferðin við skýi á augasteini er fólgin í aðgerð þar sem augasteinninn er fjarlægður og gerviaugasteinn settur í staðinn. Ef ský á augasteini veldur versnun á sjóninni, sérstaklega ef þau hamla daglegu lífi, er rétt að íhuga skurðaðgerð.

Val á gerviaugasteinum

Gerviaugasteinar eru með mismunandi eiginleikum. Þeir sem fá hefðbundna, einfókus gerviaugasteina þurfa yfirleitt lesgleraugu eftir aðgerðina og þeir sem eru með sjónskekkju geta reiknað með að þurfa gleraugu við daglegt líf. „Fínni“ tegundir gerviaugasteina leiðrétta sjónskekkju og eru með nærfókus. Þeir gera þannig fólki mögulegt að vera án gleraugna.

Eftirfylgni

Við biðjum þig um að hvíla þig vel eftir augnaðgerðina. Það er best að fara beint heim, næra sig og leggja sig. Þú munt að öllum líkindum finna fyrir einhverju af eftirfarandi, allt eftir því hvaða augnaðgerð er um að ræða: birtufælni, sviða í augunum, aðskotahlutstilfinningu, táraflæði. Hvíld er besta meðferðin við þessum einkennum auk þess að nota þá augndropa sem þú færð að lokinni aðgerð. Þú kemur í eftirskoðun einum til þremur dögum eftir aðgerð og síðan er frekara eftirlit skipulagt eftir því hvaða aðgerð þú fórst í. Þú færð nánari upplýsingar á aðgerðardeginum.

Er sjónlagsaðgerð fyrir mig?

Pantaðu tíma í forskoðun

Forskoðun er alltaf fyrsta skrefið til að ákvarða hvort að sjónlagsaðgerð henti þér og þá hvaða tegund aðgerðar myndi skila þér bestum árangri.

Algengar spurningar

Bætti lífsgæðin svakalega
Unnur Ómarsdóttir

Fór í hníflausa FemtoLASIK laseraðgerð

Lífið verður miklu einfaldara og þægilegra
Theodór Ingi Ólafsson

Fór í snertilausa TransPRK SmartPulse laseraðgerð